Guðmundur Stefán Steindórsson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri SL lífeyrissjóðs (Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda) af Sigurbirni Sigurbjörnssyni sem lét af störfum að eigin ósk þann 1. júní síðastliðinn eftir tæplega 40 ára starf hjá sjóðnum.
Guðmundur hefur starfað hjá SL lífeyrissjóði síðan 2016 sem sviðsstjóri áhættustýringar og hefur komið að fjölbreyttum verkefnum innan sjóðsins.
Hann er verkfræðingur frá Tækniháskólanum í Danmörku (DTU) og hafði reynslu af störfum á fjármálamarkaði áður en hann hóf störf fyrir SL lífeyrissjóð.
„Það er mér mikill heiður að taka við sem framkvæmdastjóri SL lífeyrissjóðs. Ég tek við öflugu búi og er fullur tilhlökkunar að halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið í þágu sjóðfélaga okkar“, segir Guðmundur.
„Stjórn SL lífeyrissjóðs færir Sigurbirni Sigurbjörnssyni innilegar þakkir fyrir hans mikilvæga framlag til sjóðsins og sjóðfélaga sem framkvæmdastjóri lífeyrissjóðsins. Hann hefur sinnt hlutverki sínu af miklum áhuga, festu og varfærni. Á hans starfstíma hefur sjóðurinn vaxið verulega, eignir margfaldast og ávöxtunin verið með því besta sem þekkist meðal íslenskra lífeyrissjóða,“ segir Magnús B. Jónsson, stjórnarformaður SL lífeyrissjóðs.
„Jafnframt bjóðum við Guðmund hjartanlega velkominn til starfa sem nýjan framkvæmdastjóra. Hann þekkir starfsemi sjóðsins afar vel og stjórn lífeyrissjóðsins var einhuga um ráðningu hans til að leiða starfsemina áfram.“