Árni Stefánsson, sem hefur verið forstjóri Húsasmiðjunnar frá árinu 2013, hefur látið af störfum hjá félaginu. „Um er að ræða samkomulag milli hans og stjórnar félagsins um að ljúka störfum,“ segir í tilkynningu frá Húsasmiðjunni.
Magnús Guðmann Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, mun taka við starfi forstjóra tímabundið þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.
„Ég hef haft þá ánægju að starfa með og kynnast frábæru fólki og viðskiptavinum í gegnum árin en fyrirtækið er eitt fjölbreyttasta verslunarfyrirtæki landsins og rekur fjölda starfstöðva á landsvísu undir merkjum Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískrafts,“ segir Árni í færslu á Facebook sem mbl.is greinir frá.
Hann bendir á að þegar hann tók við stöðunni vorið 2013 hafi Húsasmiðjan verið með 9% eiginfjárhlutfall en reksturinn hafði verið erfiður árin á undan.
„Við höfum skilað hagnaði undanfarin 11 rekstrarár og byggt nokkrar glæsilegar verslanir. Reksturinn stendur sterkt með rúmlega 5 milljarða eigið fé, um 60% eiginfjárhlutfall og arðgreiðslur. Á þessum tíma höfum við innleitt margar nýjungar í verslun, mannauðs- og umhverfismálum og byggt saman frábæran starfsanda í breiðum hópi á sjötta hundrað starfsmanna,“ skrifar Árni.
Hann segir að samstarfsfólk og tryggir viðskiptavinir standi honum efst í huga. Að lokum segist hann halda brosandi út í sumarið.