Helga Björg Hafþórsdóttir hefur verið ráðin sem mannauðsstjóri tæknifyrirtækisins Ofar en hún mun vera leiðtogi í mannauðsstjórnun og ráðningum fyrir hönd félagsins.
Hún hefur starfað síðustu átta ár hjá Origo, fyrst sem ráðgjafi í mannauðs- og launalausnum og síðar sem starfsmaður á mannauðssviði. Fyrir það starfaði hún hjá Norðurál í 10 ár, lengst af í mannauðsmálum.
„Helga kemur til okkar á frábærum tímapunkti í uppbyggingu Ofar. Við erum með um 100 starfsfólk innan okkar raða og því afar mikilvægt að mannauðsmálin séu í föstum skorðum og öruggum höndum. Ég tel okkur vera mjög lánsöm að fá Helgu til liðs við okkur,“ segir Jón Mikael Jónasson, framkvæmdastjóri Ofar.
Ofar (áður Origo lausnir) styður fyrirtæki, stofnanir, endursöluaðila og einstaklinga með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 vörumerkjum á borð við Lenovo, Canon, Bose, Sony og fleirum.
„Það er mikill heiður að taka þátt í þeirri flottu vegferð sem fyrirtækið er á. Ég er full tilhlökkunar að takast á við verkefnin sem eru fram undan með því öfluga fólki sem starfar hjá Ofar,“ segir Helga Björg Hafþórsdóttir.