Helgi Björgvinsson hefur verið ráðinn sem sölustjóri hjá Origo en hann hefur starfað í upplýsingatækni með einum og öðrum hætti í tæplega þrjá áratugi.
Undanfarin 7 ár hefur hann starfað sem forstöðumaður yfir sölu á hugbúnaðarlausnum hjá Advania og fyrir það starfaði hann sem viðskiptastjóri hjá Origo.
„Eftir tæp sjö ár utan Origo er gott að koma aftur heim. Margt hefur breyst á sjö árum en það sem stendur upp úr er sú mikla gerjun sem er að eiga sér stað, mikil tækifæri og öflugt fólk sem brennur fyrir tækifærunum. Hér er allt á fullri ferð og ég hlakka til leggja mitt af mörkum,“ segir Helgi Björgvinsson
Origo er þekkingarfyrirtæki sem veitir rekstrarþjónustu, þróar hugbúnað og er samstarfsaðili og ráðgjafi fyrirtækja í sinni stafrænni vegferð.
„Ég er glöð að fá Helga í þetta lykilhlutverk í nýju, samræmdu sölu- og markaðssviði. Helgi hefur bæði djúpan skilning á veruleika íslenskra fyrirtækja og yfirgripsmikla tækniþekkingu, sem skapar sterkan grunn fyrir árangur,“ segir Lóa Bára Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála hjá Origo.