Helgi Eysteinsson, fyrrum framkvæmdastjóri Iceland Travel, hefur gengið til liðs við nýja flugfélagið Niceair og er ætlað að stýra uppbyggingu á sölu- og markaðsstarfi félagsins.

Hann var framkvæmdastjóri Iceland Travel og VITA, dótturfélaga Icelandair Group, á árunum 2008-2013 og hefur á undangengnum árum starfað á Íslensku auglýsingastofunni þar sem hann vann að ráðgjöf, uppbyggingu vörumerkja og markaðsfærslu fyrir mörg af sterkustu vörumerkjunum í íslenskri ferðaþjónustu. Auk þess hefur Helgi verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi í fjölmörgum ferðatengdum verkefnum.

Sjá einnig: Akureyrska flugfélagið Niceair í loftið

Niceair er nýtt flugfélag sem hefur sig til flugs frá Akureyri og flýgur beint til Kaupmannahafnar, London og Tenerife fyrst um sinn. Félagið hóf sölu á flugmiðum í gær og hafa viðtökur verið „vonum framar“, að því er segir í fréttatilkynningu.

Helgi Eysteinsson:

„Ég er gríðarlega spenntur fyrir verkefninu og heillaðist strax af kraftinum og frumkvöðlaandanum sem ég fann hjá stofnendum félagsins.  Undirbúningur starfseminnar er vandaður og hluthafahópurinn er breiður og traustur.  Það verður virkilega gaman að hefjast handa við að kynna starfsemina og vörumerkið fyrir viðskiptavinum á markaðssvæði félagsins á norður- og austurlandi og ekki síður að fá tækifæri til að kynna umheiminn fyrir þessari aðgengilegu gátt að töfrandi perlum norðurlands og þjónustu þeirra fjölmörgu öflugu ferðaþjónustuaðila sem þar starfa.“

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair:

„Það er sannarlega ánægjulegt að hafa fengið Helga til liðs við okkur í þetta stóra og metnaðarfulla verkefni sem við stöndum frammi fyrir. Helgi býr yfir gríðarlegri reynslu af uppbyggingu sölu- og markaðsstarfs, vörumerkjastjórnun og stofnun fyrirtækja í ferðaþjónustu. Sú reynsla mun vafalaust nýtast okkur vel í kynningu og uppbyggingu á vörumerkinu og öllum þeim verkefnum sem við okkur blasa við stofnun félagsins.“