Jens Þórðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Geo Salmo, sem áformar uppbyggingu landeldis á laxi á Íslandi. Jens lét í haust af störfum sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs (COO) hjá Icelandair en hann vann hjá flugfélaginu undanfarin 15 ár.
Jens hefur þegar hafið störf hjá Geo Salmo en þar störfuðu fyrir þrír aðrir starfsmenn. Félagið er fullfjármagnað og hefur þegar hafið skipulags- og leyfisferli með hlutaðeigandi stofnunum ásamt hönnun fiskeldisstöðvarinnar.
Geo Salmo stefnir að uppbyggingu fiskeldisstöðvar við Þorlákshöfn á næstu árum þar sem áformað er að ala lax í fulla stærð á landi. Lögð verður áhersla á að framleiða hágæða lax við bestu mögulegu aðstæður og með lágmarks áhrifum á umhverfið, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.
Fyrirtækið stefnir á að nýta allt sem fellur til við fiskeldið til hins ýtrasta, t.d. með nýtingu affallsvatns í ræktun grænmetis og nýtingu ónothæfra hliðarafurða fisks í orkuframleiðslu en einnig með þróun á nýjum vörum sem geta skapað aukin verðmæti. Þannig setur fyrirtækið sér það markmið að langtímaáhrif þess á umhverfið séu hverfandi.
Jens er með M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og er búsettur í Reykjavík ásamt Ernu Kristínu Blöndal, eiginkonu sinni og þremur börnum.
Jens Þórðarson:
„Mér er mikill heiður og ánægja að taka við þessu magnaða verkefni. Landeldi á laxi er í örum vexti á heimsvísu en með því má skapa umhverfisvæna og holla matvöru. Geo Salmo hefur óþrjótandi metnað fyrir því að vera framarlega á sínu sviði og nýta sér þau tækifæri sem þessi nýja framleiðslugrein býður upp á samhliða góðum áhrifum á nærsamfélagið og umhverfið. Þetta er frábær blanda og ég hlakka til að hefjast handa og taka þátt í sköpun nýrrar framtíðar í matvælaframleiðslu.“