Katrín Ýr Magnúsdóttir hefur tekið við sem framkvæmdastjóri Heilsu og hóf störf 1. febrúar. Hún býr yfir 15 ára bakgrunni úr alþjóðamatvælatækni- og lyfjageiranum.
Heilsa er elsta fyrirtæki á Íslandi sem sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á vítamínum, fæðubótarefnum, vistvænum matvörum, snyrtivörum og hreinlætisvörum. Fyrirtækið sérhæfir sig einnig samhliða í innflutningi á lyfjum og sérvörum fyrir apótek.
Katrín Ýr er með M.Sc. í fjármálum og stefnumiðaðri stjórnun frá Copenhagen Business School og B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Hún kemur frá JBT Marel, þar sem hún stýrði 150 manna teymi í vörustjórnun, vöruþróun og þjónustu á Íslandi, Bretlandi og Danmörku. Þar gegndi hún einnig lykilhlutverki í stefnumótun, breytingastjórnun og innleiðingu nýrra fyrirtækja.
Áður starfaði hún hjá greiningardeild AstraZeneca í Bretlandi og fyrir það hjá Roche í Danmörku, þar sem hún leiddi verðlagningu, útboð og innleiðingu nýrra lyfja í Danmörku og á Íslandi. Auk þess hefur hún kennt stjórnun við Háskólann í Reykjavík.
„Það er mér mikill heiður að taka við Heilsu, vinna með öflugu teymi félagsins og styðja við frekari vöxt og þróun okkar vöru- og þjónustuframboðs. Í samvinnu við viðskiptavini okkar munum við áfram vinna að því að efla heilsu og vellíðan landsmanna og sækja ný tækifæri á heilsuvöru- og lyfjamarkaði,” segir Katrín Ýr.