Kristjana Þórdís Jónsdóttir hefur tekið við sem forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen. Hún lauk námi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2023 og hefur starfað innan fyrirtækisins frá árinu 2019.

Lengst af starfaði hún við heilgámaflutninga í samstarfi við CMA CGM, þriðja stærsta skipafélag heims en TVG-Zimsen hefur verið umboðsaðili CMA CGM frá árinu 2007.

Kristjana hóf sumarstörf hjá fyrirtækinu eftir að amma hennar og nafna, Þórdís Ingvarsdóttir, lét af störfum og segist hún hafa fetað í fótspor hennar sem litla Dísa.

„Á námsárunum vann ég svo með námi í hlutastarfi og fékk tækifæri til að kynnast ólíkum deildum – þjónustudeildinni, akstursdeildinni og sjó- og flugdeildinni, þar sem ég sinnti skráningu sendinga. Ég fékk einnig tækifæri til að starfa tímabundið á skrifstofu Eimskips á Grænlandi, sem var dýrmæt reynsla og gaf mér innsýn í alþjóðlega starfsemi samstæðunnar, en TVG-Zimsen er dótturfélag Eimskips,“ segir Kristjana.

Hún segist spennt fyrir nýju hlutverki sínu sem forstöðumaður og sé mjög þakklát fyrir traustið við að leiða áfram teymi söludeildarinnar. „Það ríkir góður starfsandi hjá TVG-Zimsen og sterk liðsheild.“

„Við erum afar ánægð að fá Kristjönu í þetta leiðtogahlutverk. Hún hefur sýnt mikla elju og árangur í öllu sem hún hefur tekið sér fyrir hendur og hefur vaxið með fyrirtækinu. Ég hef fulla trú á því að hún muni leiða söludeildina inn í næsta kafla af vexti og þróun,“ segir Elísa Dögg Björnsdóttir, framkvæmdastjóri TVG-Zimsen.