Stólpi Gámar hefur ráðið Rúnar Höskuldsson sem nýjan framkvæmdastjóra sölusviðs en hann hefur víðtæka reynslu úr stjórnunar- og sölustörfum.

Rúnar hefur starfað við rekstrarstjórn og sölumál hjá ýmsum fyrirtækjum á Íslandi, þar á meðal Álfaborg, Vatn & veitur, Ölgerðinni, Odda Prentun og Lyf & heilsu.

Hann er menntaður iðnrekstrarfræðingur frá Tækniháskóla Íslands og hefur lokið MBA gráðu frá Háskóla Íslands.

„Við bjóðum Rúnar hjartanlega velkominn í teymið hjá Stólpa Gámum og hlökkum til að vinna með honum að enn frekari vexti og velgengni fyrirtækisins,“ segir Börkur Grímsson, forstjóri Stólpa Gáma.