Hönnunar- og auglýsingastofan Tvist hefur ráðið tvo nýja starfsmenn, þær Stefaníu Ósk Arnardóttur og Emmu Theodórsdóttur.

Stefanía Ósk Arnardóttir tekur við starfi viðskiptastjóra, en hún hefur gegnt starfi markaðsstjóra Nespresso á Íslandi frá árinu 2019. Stefanía er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands þar sem áhersla var lögð á markaðsmál og alþjóðaviðskipti.

Emma Theodórsdóttir snýr aftur í hóp grafískra hönnuða á stofunni, en hún starfaði hjá Tvist árin 2017-2020. Emma er með BA gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands og MA gráðu í upplýsingahönnun frá Design Academy Eindhoven í Hollandi.

„Við erum virkilega ánægð með að fá Emmu og Stefaníu í okkar góða hóp. Þær koma báðar með verðmæta reynslu að borðinu sem mun án efa nýtast í fjölbreyttum verkefnum stofunnar“, segir Sigríður Ása Júlíusdóttir, hönnunarstjóri hjá Tvist. „Þær leggja líka sitt af mörkum við að viðhalda hinni sönnu Tvist stemmningu þar sem við leggjum áherslu á fagmennsku ásamt árangurdrifnu og þéttu sambandi við viðskiptavini.“

Hönnunar- og auglýsingastofan Tvist var stofnuð árið 2016. Tvist sinnir fjölbreyttum verkefnum á sviði vörumerkjaþróunar, auglýsingagerðar og almannatengsla fyrir nokkur af helstu vörumerkjum landsins. Stofan er í eigu Kára Sævarssonar, Ragnars Jónssonar og Sigríðar Ásu Júlíusdóttur sem öll starfa hjá fyrirtækinu.