Oddgeir Ágúst Ottesen hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH). Hann er með doktorsgráðu í hagfræði frá University of California þar sem sérsvið hans var fjármálahagfræði og stærðfræðigreining.

Undanfarin átta ár hefur hann rekið ráðgjafafyrirtækið Integra og veitt þar ráðgjöf varðandi líkanagerð og áhættu- og lausafjárstýringu. Einnig veitti hann þar ráðgjöf um lífeyrismál fyrir stofnanir, fyrirtæki og hagsmunasamtök. Hann mat meðal annars virði bakábyrgðar ríkisins á skuldbindingum A-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) þegar lögum um sjóðinn var breytt árið 2016.

Áður starfaði Oddgeir sem aðalhagfræðingur hjá IFS greiningu, sem hagfræðingur á fjármálastöðugleikasviði Seðlabanka Íslands og sem hagfræðingur og síðar forstöðumaður áhættugreiningardeildar lánasviðs Fjármálaeftirlitsins.

Oddgeir hefur einnig verið lektor við viðskiptadeild Háskóla Íslands og kennt þar áfanga í fjármálum og hagfræði.

Stefán Þór Björnsson, formaður KVH:

„Það er mikill akkur að fá jafnreyndan hagfræðing til liðs við okkur til að vinna að hagsmunum félagsmanna. Það er mikilvægt fyrir félagið að hafa reynslumikinn og góðan greinanda sem framkvæmdastjóra þess. Við í stjórninni hlökkum mikið til að starfa með Oddgeiri.“

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga er stéttarfélag sem sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna sinna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Auk þess sinnir félagið annarri hagsmunagæslu fyrir félagsmenn sína.

Fjöldi félagsmanna er á annað þúsund og um helmingur þeirra starfar á almennum vinnumarkaði en tæplega helmingur hjá hinu opinbera. Félagið er aðili að Bandalagi háskólamanna (BHM).