Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðukona nýsköpunar og atvinnulífstengsla hjá Háskólanum í Reykjavík en hún hefur yfir 20 ára reynslu af samstarfi við atvinnulíf og lögfræðistörfum. Hún hóf störf hjá Háskólanum í Reykjavík í byrjun janúar.
„Ég er full tilhlökkunar að verða hluti af HR-hópnum og efla enn frekar hið líflega nýsköpunarstarf skólans og þau sterku tengsl sem skólinn hefur við atvinnulífið. Hjá Háskólanum í Reykjavík ríkir mikill metnaður og vilji til að gera vel og það er von mín að reynsla mín og þekking nýtist til góðra verka þar,“ segir Ólöf Vigdís.
Hún hefur verið deildarstjóri nýsköpunar og lögfræðideildar Háskóla Íslands frá árinu 2019 ásamt því að vera framkvæmdastjóri Sprota-eignarhaldsfélags Háskóla Íslands. Árin 2018-2019 starfaði hún sem fjárfestingastjóri hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins og árin 2012-2018 sem lögfræðingur og sérfræðingur Hugverkanefndar Háskóla Íslands og Landspítala í hugverkarétti, auk þess að vera framkvæmdastjóri Tæknigarðs.
Ólöf starfaði þá í átta ár hjá Einkaleyfastofunni þar sem hún gegndi ýmsum störfum, meðal annars lögfræði- og stjórnunarstörfum.