Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum. Rakel hefur setið í framkvæmdastjórn bankans frá árinu 2011 þegar hún tók við starfi framkvæmdastjóra þróunar- og markaðssviðs.

Hún tók við starfi framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs árið 2016. Hún mun láta af störfum föstudaginn 20. september næstkomandi. Rakel er önnur forystukonan í yfirstjórn Arion banka sem hættir í vikunni, en eins og Viðskiptablaðið sagði frá á mánudag hættir Jónína S. Lárusdóttir framkvæmdastjóri lögfræðisviðs í lok vikunnar. Jafnframt hætti Höskuldur Ólafsson bankastjóri snemma í vor.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka þakkar Rakel fyrir góð störf og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni.
„Rakel hefur starfað hjá bankanum frá árinu 2005 og í störfum sínum haft mikil áhrif á þróun bankans, ekki síst á sviði stafrænna lausna þar sem bankinn hefur verið í forystuhlutverki á undanförnum árum,“ segir Benedikt.

Fleiri fréttir um málefni Arion banka: