Raquelita Rós Aguilar hefur hafið störf hjá Itera á Íslandi sem tæknilegur leiðtogi fyrir íslenskan markað. Hún kemur til liðs við tæknifyrirtækið með víðtæka reynslu og sérfræðiþekkingu á sviði upplýsingatækni, nýsköpunar og stafrænnar umbreytingar.

Hún mun leiða tæknilega stefnumótun Itera á Íslandi ásamt því að koma að verkefnum hjá núverandi viðskiptavinum og styðja við áframhaldandi vöxt og þróun á markaðnum. Raquelita er tölvunarfræðingur og hefur unnið víða bæði í tæknistörfum og sem stjórnandi.

„Það er okkur sönn ánægja að fá Raquelitu til liðs við Itera. Hún bætist við öflugt teymi Itera sem hefur þegar náð frábærum árangri og við erum sannfærð um að hennar innsýn og leiðtogahæfileikar muni efla starfsemi okkar enn frekar,“ segir Snæbjörn Ingi Ingólfsson, framkvæmdastjóri Itera á Íslandi.

Itera er búið að starfa á íslenskum markaði frá árinu 2016 en árið 2021 var fyrirtækið Itera ehf. stofnað til að efla enn frekar tengsl sín og þjónustu við íslenskan markað. Itera aðstoðar þá viðskiptavini sína við þróun hugbúnaðarlausna.