Rebekka Ósk Gunnarsdóttir hefur gengið til liðs við eigendahóp OPUS lögmanna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögmannsstofunni.
Rebekka er lögmaður og starfaði áður hjá dómsmálaráðuneytinu, samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytinu og Sjúkratryggingum Íslands eftir að hafa útskrifast með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2020.
Hún hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2021 og hefur síðan þá sinnt málflutningi og lögfræðiráðgjöf fyrir stofuna. Hennar helstu sérsvið eru skaðabótaréttur, fjölskyldu- og erfðaréttur, barnavernd og sakamál.
„Rebekka Ósk er öflugur lögmaður og dýrmætur fengur af henni í eigendahópinn,“ segir Bjarni Þór Sigurbjörnsson lögmaður og eigandi hjá OPUS í tilkynningunni.