Rósa Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eimskips en hún hefur störf í byrjun september. Hún tekur við stöðunni af Maríu Björk Einarsdóttur sem var nýlega ráðin forstjóri Símans.

Rósa kemur til Eimskips frá fasteingafélaginu Heimum þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri fjármála frá árinu 2021.

Áður starfaði hún hjá Íslandsbanka, m.a. á alþjóðasviði, sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði og í fyrirtækjaráðgjöf bankans. Þá starfaði hún sem forstöðumaður sparnaðar og útlána á einstaklingssviði og bar m.a. ábyrgð á verðlagningu inn- og útlána og leiddi innleiðingu á starfrænum lausnum.

Rósa er með M.S. gráðu í iðnaðarverkfræði og aðgerðargreiningu frá Pennsylvania State University og B.S. gráðu í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Þá hefur Rósa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

„Rósa hefur nýtt mikla reynslu sína á fjármálamörkuðum í umbreytingu á fjármálasviði Heima hvað varðar áætlanagerð, stefnu, lykilmælikvarða og ferla sem er í takti við þá vegferð sem við höfum verið á hjá Eimskip. Ég hlakka til að fá Rósu til liðs við okkur og er viss um að áherslur hennar, þekking og reynsla, ekki síst í stafrænum og sjálfvirkni verkefnum munu nýtast félaginu vel á komandi misserum,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips.