Sandra Arnardóttir hefur verið ráðin í starf markaðsstjóra Smáralindar en hún tekur við starfinu af Tinnu Jóhannsdóttur. Þetta kemur fram í tilkynningu
Sandra hefur víðtæka reynslu á sviði markaðsmála og hefur starfað sem verkefnastjóri í markaðsdeild Smáralindar frá árinu 2012 þar sem hún hefur komið að öllu markaðsstarfi Smáralindar og skipulagningu viðburða. Þar áður starfaði Sandra í markaðsdeild SPRON.
Sandra er með BSc gráðu í alþjóðamarkaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík, diploma í verkefnastjórnun og stundar mastersnám í alþjóðaviðskiptum hjá Háskólanum á Bifröst samhliða vinnu
Sandra Arnardóttir, markaðsstjóri Smáralindar:
„Ég er ánægð að hafa fengið þetta tækifæri og hlakka til að halda áfram þeirri frábæru vegferð sem Smáralind hefur verið á undanfarið. Smáralind er sterkari en aldrei fyrr með öllum þeim nýju og glæsilegu verslunum sem hafa opnað í húsinu á síðustu árum og gríðarlegri uppbyggingu í nær umhverfinu". Það eru því mörg spennandi tækifæri framundan í markaðsstarfinu."