Sigurður Stefán Flygenring hefur tekið við starfi þjónustustjóra fyrirtækjasviðs Macland. Sigurður Stefán starfaði áður sem tæknimaður á verkstæði fyrirtækisins en hann hefur starfað hjá Macland frá stofnun þess árið 2010.

Þá hefur Sigurður Helgi Ellertsson tekið við starfi þjónustustjóra einstaklingssviðs. Sigurður Helgi starfaði einnig sem tæknimaður á verkstæði fyrirtækisins en hann hefur starfað hjá Macland síðan í janúar 2011.

Báðir hafa þeir Sigurður Stefán og Sigurður Helgi sótt fjölmörg námskeið hjá Apple.

Hörður Ágústsson, eigandi Macland, segir að ákveðið hafi verið að fara í þessar skipulagsbreytingar til að geta betur mætt kröfum viðskiptavina þeirra. Hann segir heppni að nóg sé að gera hjá Macland og vonar að svo verði áfram.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Sigurður Helgi Ellertsson

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Sigurður Stefán Flygenring