Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) hefur ráðið Skúla Hrafn Harðarson í starf sjóðstjóra á eignastýringasviði. Hann mun hefja störf hjá LSR innan nokkurra vikna.
„Skúli mun gegna lykilhlutverki við mat og stýringu verðbréfa á innlendum markaði hjá LSR og taka þátt í áframhaldandi vegferð í fjárfestingum sjóðsins, sem er sá stærsti á landinu,“ segir í fréttatilkynningu.
Skúli hefur síðustu ár verið sjóðstjóri hlutabréfasjóða hjá Kviku eignastýringu þar sem hann hefur leitt eignastýringu í innlendum hlutabréfum. Hann hefur starfað hjá samstæðu Kviku banka og fyrirrennara fyrirtækisins, MP Banka, frá árinu 2008, þar sem hann gegndi áður starfi sjóðstjóra í blandaðri eignastýringu og sem forstöðumaður eigin viðskipta bankans.
Skúli er með BA-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og hefur hlotið löggildingu í verðbréfamiðlun.