Þorstein Jóhannesson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra Stoðar, þjónustufyrirtækis á heilbrigðissviði. Þá tekur Þorsteinn einnig sæti í framkvæmdastjórn Veritas, móðurfélags Stoðar.

Þorsteinn, sem er með MBA gráðu frá HR, kemur til Stoðar frá Röntgen Orkuhúsinu þar sem hann gegndi stöðu framkvæmdastjóra.

„Það er virkilega ánægjulegt að hefja störf hjá Stoð. Fyrirtækið á sér merkilega sögu og hefur í áratugi gegnt mikilvægu hlutverki við að bæta lífsgæði fólks á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfar öflugur og skemmtilegur hópur fólks, með mikla þekkingu og hlakka ég til að vinna með þeim að tækifærunum sem framundan eru,“ segir Þorsteinn.

Stoð sérhæfir sig í heildstæðum lausnum á sviði stoðtækja, hjálpartækja og almennrar stuðningsvöru. Vöruframboðið inniheldur m.a. sérhæfð hjálpartæki, stoðtæki, gervibrjóst, spelkur, hlífar, þrýstingsvörur og smáhjálpartæki sem auðvelda daglegar athafnir. Þá býður Stoð upp á göngugreiningar, innlegg og vandað framboð á skóm, þrýstingssokkum og íþróttasokkum sem henta við ólíkar aðstæður.

„Við bjóðum Þorstein hjartanlega velkominn til starfa hjá samstæðunni. Stoð byggir á mikilli reynslu og sérhæfingu og mun undir stjórn Þorsteins sækja enn frekar fram í lausnum sem styðja við fjölbreyttan hóp viðskiptavina,“ segir Þóranna Jónsdóttir, forstjóri Veritas.

Veritas samstæðan samanstendur, auk Stoðar, af félögunum Distica sem sinnir vörustjórnun og dreifingu til lyfjabúða, rannsóknarstofa og heilbrigðisstofnana. Vistor sem sérhæfir sig á sviði markaðssetningar á lyfjum, heilsuvörum og dýraheilbrigðisvörum. Artasan sérhæfir sig í sölu og markaðssetningu á heilsuvörum og dagvörum og MEDOR sem sérhæfir sig í ráðgjöf, sölu og þjónustu á lækningatækjum, hjúkrunar- og rannsóknarvöru.