Icelandic Water Holdings hefur ráðið til starfa Raymond Thu, fjármálastjóra í Los Angeles, Colin Tan, lögmann í London og Tryggva Harðarson, framkvæmdastjóra á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Raymond á að baki yfir tveggja áratuga starfsferil af alþjóðlegum drykkjavörumarkaði og mun reynast öflugur liðsauki í uppbyggingu Icelandic Glacial vörumerkisins á heimsvísu, að því er kemur fram í tilkynningu félagsins.
Colin Tan hefur starfað í 20 ár í einkageiranum í London. Hann hefur varið meirihluta síns lögmannsferils í verkefnum fyrir alþjóðlega fjárfestingabanka og séreignarsjóði, í Bandaríkjunum og Evrópu, í tengslum við viðskipti með fyrirtæki í matvæla og veitingageira í Asíu og Evrópu, sem og eignasöfn. Hann sérhæfir sig í millilandaviðskiptum og er öllum hnútum kunnugur hvað varðar viðskiptasamninga á heimsvísu.
Tryggvi Harðarson kemur til starfa sem framkvæmdastjóri vatnsverksmiðju Icelandic Water Holdings að Hlíðarenda í Ölfusi. Tryggvi hefur yfir 20 ára reynslu hjá Coca Cola og hefur yfirgripsmikla rekstrarreynslu með áherslu á innkaup, framleiðslu, áætlanagerð og vörustjórnun ásamt því að hafa leitt umbótavinnu undanfarin 2 ár.
Jón Ólafsson, stjórnarformaður og annar stofnenda Icelandic Water Holdings:
„Ray býr yfir sérþekkingu á okkar sviði, af tekjustýringu og viðskiptaþróun hjá heimsþekktum drykkjavöruframleiðendum. Hann hefur sýnt einstaka hæfni til að vinna í hröðu nýsköpunar- og frumkvöðla-starfsumhverfi og við erum hæstánægð með að fá hann til liðs við okkur.“
„Colin hefur undanfarin 3 ár komið að í langtímafjármögnun félagsins og þekkir vel til bæði fjármála og allrar starfsemi félagsins. Hann er mjög mikilvæg viðbót við teymið í þeirri vinnu sem nú á sér stað varðandi fjárhag og viðskiptaþróun félagsins til framtíðar.“
„Tryggvi hefur fjölbreytta reynslu sem mun nýtast okkur vel í örum vexti sem leiðandi framleiðandi á úrvals drykkjarvatni á alþjóðavísu. Hann er mikill liðsstyrkur.“