Set ehf. hefur nýlega gengið frá ráðningu á þremur sérfræðingum en það eru þau Gísli Karel Eggertsson, Magnús Lárusson og Jóhanna Harpa Árnadóttir. Set er alþjóðlegt innviðafyrirtæki og er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á Íslandi.

Gísli Karel Eggertsson hefur verið ráðinn vöruhússtjóri hjá Set en hann hefur áratugareynslu af lagerstjórn, sölu og verslunarstjórn og sölustörfum.

Hann hefur á síðustu árum sérhæft sig í að endurskipuleggja lagera og lagerferla meðal annars hjá Orku náttúrunnar, Margt smátt ehf. og Einar Ágústsson & co. ehf. Gísli sér um vöruhús og vöruafgreiðslu. Gísli er þá menntaður í sjávarútvegsfræðum og starfstengdum námskeiðum frá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Magnús Lárusson hefur verið ráðinn sem sérfræðingur í vörustýringu. Hann kemur með mikla sérþekkingu á innkaupaferlum og vörustýringu innan fyrirtækja.

Síðustu ár hefur hann unnið hjá Controlant og þar áður hjá Linde Gas. Hann er með M.Sc. gráðu í mannauðsstjórnun og B.A. í félagsfræði frá Háskóla Íslands.

Í starfi öryggis- og gæðastjóra mun Jóhanna Harpa Árnadóttir leiða umbótastarf og endurhönnun ferla.

Hún er með umfangsmikla reynslu á sviði sjálfbærni og umhverfismála og starfaði áður sem verkefnastjóri og sérfræðingur hjá Icelandair og Landsvirkjun. Jóhanna hefur M.Sc. í rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet, vottun sem verkefnastjóri og diplómu í kennslufræði háskóla.

„Við hjá Set erum ákaflega glöð með þennan góða liðstyrk sem kemur með ráðningu þeirra Gísla, Jóhönnu og Magnúsar. Við erum með metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir Set og ráðningar þeirra eru mikilvægur þáttur í að styrkja félagið í þeirri vegferð,“ segir Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Set.