Gagnavers- og ofurtölvufyrirtækið atNorth hefur ráðið Bjarka Björnsson sem forstöðumann fjármögnunar og fjárstýringar og Axel Valdemar Gunnlaugsson í starf forstöðumanns upplýsingatækni.

Bjarki kemur til með að bera ábyrgð á fjölda verkefna, þar á meðal sjálfbærri fjármögnun á vexti fyrirtækisins og mun Axel meðal annars leiða stefnumótun og samþættingu kerfa og ferla hjá atNorth.

„Starfsemi gagnavera og þróun gervigreindar er það svið upplýsingatækninnar sem er hvað mest spennandi í heiminum í dag og það er tilhlökkunarefni að vinna að undirstöðum örs og áframhaldandi vaxtar atNorth,“ segir Bjarki Björnsson.

Í tilkynningu segir jafnframt að ráðning Bjarka og Axels til atNorth sé til komin vegna aukinna umsvifa fyrirtækisins, en yfirstandandi er stækkun gagnavera atNorth á Akureyri og í Reykjanesbæ.

„Ég hlakka til að taka til hendinni upplýsingatæknirekstri atNorth og tryggja áframhaldandi þjónustu í hæsta gæðaflokki sem styður við vöxt fyrirtækisins,“ segir Axel Valdeman Gunnlaugsson.

Bjarki Björnsson kemur til atNorth frá Marel þar sem hann hafði starfað frá 2011, fyrst sem sérfræðingur í fjárstýringu en svo sem yfirmaður fjárstýringar og fjármögnunar. Áður starfaði Bjarki hjá SP-Fjármögnun í fjárstýringu frá árinu 2004.

Axel hefur sérhæft sig í þróun hugbúnaðar og högun tæknilegs umhverfis fyrirtækja jafnt heima og erlendis, en áður en hann kom til atNorth var hann tæknistjóri Icelandia (Kynnisferða) frá 2021.

„Við bjóðum Bjarka og Axel hjartanlega velkomna og hlökkum til samstarfsins. Starfsfólkið er hjarta starfseminnar og drifkrafturinn að baki áframhaldandi vexti atNorth. Við fögnum liðsaukanum og höldum áfram að einbeita okkur að því verkefni að mæta þörfum fyrirtækja fyrir stafræna innviði á umhverfisvænan hátt,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth.