„Fyrstu vikurnar hafa verið frábærar. Ég er að læra margt nýtt en félagið starfar á markaði sem ég hef ekki starfað á áður. Minn bakgrunnur og reynsla í verslunarrekstri liggur í matvöru,“ segir Sigurður Karlsson sem tók nýverið við sem framkvæmdastjóri húsgagnaverslunarinnar ILVA.
Hann segir ILVA stefna á frekari vöxt á íslenskum markaði. „Í verslunum okkar má nálgast hágæða hönnun á mjög góðu verði. Við erum að reisa fjögur þúsund fermetra vöruhús við verslun okkar í Kauptúni sem stefnt er á að verði tilbúið um mitt næsta ár. Þá geta viðskiptavinir okkar nálgast vörurnar sínar í versluninni, en í dag er vöruhúsið okkar staðsett á Korputorgi. Í vikunni fagnar ILVA svo 15 ára afmæli hér á Íslandi og því verður fagnað með veglegum afmælistilboðum.“
Þegar Sigurður var 19 ára fór hann í hjólatúr sem átti eftir að hafa mikil áhrif á þróun starfsferilsins. „Ég var að hjóla framhjá Securitas í Síðumúla og tók þá skyndiákvörðun að sækja um vinnu hjá þeim. Þeir voru til í að ráða mig og ég hóf störf sem öryggisvörður í Hagkaup í Kringlunni. Tæpu ári síðar var mér boðin vinna sem öryggisfulltrúi hjá 10/11, sem reyndist mikið heillaskref, því ég endaði á að starfa þar í rúmlega tuttugu ár. Ég byrjaði í öryggismálunum og vann mig svo upp með tímanum. Síðustu þrjú árin var ég framkvæmdastjóri félagsins.“
Eftir að hafa hætt störfum hjá 10/11 ákvað Sigurður að venda kvæði sínu í kross. „Undir lok starfsferils míns í 10/11 var ég í meistaranámi í reikningshaldi og endurskoðun samhliða vinnu. Ég kláraði það og hóf í kjölfarið störf við endurskoðun hjá EY. Eftir að ég tók við framkvæmdastjórastarfinu hjá 10/11 fann ég fyrir því að ég hafði ekki nægilega mikla þekkingu á þessu sviði og ákvað því að bæta úr því. Ég sá fyrir mér að starfa hjá EY næstu árin en þegar mér var boðið að taka við framkvæmdastjórastarfinu hér var það of spennandi boð til að hafna.“
Nánar er rætt við Sigurð í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.