Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram með mest fylgi allra flokka í Reykjavíkurborg en samkvæmt könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Viðskiptablaðið í maímánuði er fylgi flokksins 31,3%. Samfylkingin sækir aftur á móti í sig veðrið og mælist fylgi flokksins nú 26%.

Litlar breytingar eru á fylgi hinna stjórnarflokkanna milli kannanna. Flokkur Fólksins og Vinstri græn eru með sambærilegt fylgi og í kosningunum 2022, eða 4,5% og 4,3%. Sósíalistaflokkurinn mælist með 9,1% fylgi. Píratar hafa fengið verstu útreiðina en flokkurinn var með 11,6% fylgi í kosningunum 2022 en í maí mældist fylgi flokksins 5,7%.

Fylgi Framsóknarflokksins hefur verið í frjálsu falli en flokkurinn, sem var með 18,7% fylgi í kosningunum 2022, mælist nú eingöngu með 3,1% fylgi. Miðflokkurinn, sem fékk engan mann kjörinn í kosningunum 2022, mælist aftur á móti með 5,4% fylgi. Viðreisn hefur að lokum verið á góðu róli og mældist flokkurinn með 10,6% fylgi í maí.

Þegar nánar er rýnt í tölurnar má meðal annars sjá að talsverðar breytingar urðu á fylgi flokkanna ef horft er til búsetu. Milli kannana bætir Samfylkingin við sig fylgi í öllum póstnúmerum, þ.á.m. um 15% í Vesturbænum og 11,9% í Árbæ og Grafarholti. Sjálfstæðisflokkurinn tapar á móti 11,3% fylgi í Breiðholti og um 4,7% í Hlíðunum en bætir við sig 5,6% fylgi í Laugardal.

Framsóknarflokkurinn og Sósíalistaflokkurinn tapa fylgi í nær öllum póstnúmerum. Í Háaleitis- og Bústaðahverfi og Múlahverfi tapar Framsókn til að mynda 4,9% fylgi og Sósíalistar tapa 3,7%. Sósíalistaflokkurinn tapar 8% fylgi í Grafarholti og Árbæ, 6,4% í  Laugardal, 3,7% í Breiðholti og 3,5% í miðborginni og nágrenni. Framsókn tapar þá 4% fylgi í Árbæ og Grafarholti og 2,1% í Grafarvogi.

Hjá öðrum flokkum eru hrókeringar milli póstnúmera en Viðreisn tapar til að mynda 4,9% fylgi í Vesturbæ en bætir við sig 5,4% í Laugardal og 6,5% í Árbæ og Grafarholti. Flokkur fólksins missir einnig lítillega fylgi í Laugardal og Árbæ og Grafarholti en bætir við sig í Hlíðum og Breiðholti.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.