Húsasmiðjan hagnaðist um rúmlega 1,2 milljarða króna á síðasta ári, sem er svipuð afkoma og árið áður.

Tekjur námu rúmlega 27 milljörðum króna og jukust um 14% frá fyrra ári. Framlegð nam tæplega 9 milljörðum og jókst um 8% milli ára.

Stjórn félagsins leggur til að greiddar verði 400 milljónir króna í arð til hluthafa í ár. Árni Stefánsson er forstjóri Húsasmiðjunnar.

Lykiltölur / Húsasmiðjan

2022 2021
Tekjur 27.328  23.956
Eignir 10.421 8.698
Eigið fé 5.560 4.933
Afkoma 1.226 1.211
- í milljónum króna

Fréttin birtist fyrst í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.