Festing hf., fasteignafélag í 80% eigu hjónanna Ólafs Ólafssonar og Ingibjargar Kristjánsdóttur, hagnaðist um 1,6 milljarða króna á árinu 2023 samanborið við tæplega 800 milljóna króna árið áður.

Þannig nam matsbreyting fjárfestingareigna 1,4 milljörðum króna og rekstrartekjur tæplega milljarði króna.

Eik fasteignafélag og hluthafar Festingar undirrituðu í nóvember helstu skilmála vegna fyrirhugaðra kaupa Eikar á öllu hlutafé í Festingu.

Heildarvirði (e. Enterprise Value) Festingar í viðskiptunum er áætlað 15,3 milljarðar króna og er fyrirhugað að kaupin verði fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé.

Fasteignir Festingar á Íslandi eru um 43 þúsund fermetrar að stærð í 11 fasteignum og hýsa starfsemi Samkipa um landið og eru að stærstum hluta í Reykjavík en einnig á Akureyri, Dalvík, Egilsstöðum, Ísafirði og Vestmannaeyjum.

Undanskilin í kaupunum eru dótturfélög Festingar í Noregi og Færeyjum sem eiga einnig fasteignir sem nýttar eru í starfsemi Samskipa. Byggt á áætlun stjórnenda Festingar um EBITDA-hagnað ársins 2025 áætlar Eik að áhrif á EBITDA fasteignafélagsins á ársgrundvelli verði 1.085 milljónir króna.

Festing

2023 2022
Matsbreyting fjárfestingaeigna 1.408 273
Eignir 16.042 15.461
Eigið fé 6.943 5.718
Hagnaður 1.600 796
Lykiltölur í milljónum króna.