Hjá Kerecis starfa um 600 manns í dag, þar ef eru um 120 á Íslandi. Af þeim sem starfa á Íslandi eru 60 á Ísafirði og 60 í Reykjavík. Um 300 af þessum starfsmönnum voru með kauprétt, sem þýðir að eftir söluna til Coloplast fá þeir samtals tæplega 200 milljónir dollara eða um 28 milljarða króna.

Spurður hvernig gangi að halda þessu fólki á tánum eftir þetta svarar Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis: „Ég held að þeir sem vinna hjá Kerecis geri það af því þeim þykir það skemmtilegt. Við erum búin að þróa vöru sem hefur mikil áhrif á líf fólks. Ef þú ert týpan sem ert til í að starfa hjá íslensku fyrirtæki sem er að framleiða sáraroð þá ertu með hjartað á réttum stað og hefur áhuga á starfinu. Ég vakna að minnsta kosti á hverjum morgni og hlakka til að fara í vinnuna.“

Í hátæknisetri Kerecis á Ísafirði.
Í hátæknisetri Kerecis á Ísafirði.

Byggja nýtt hátæknisetur á Ísafirði

Framleiðsla Kerecis fer fram í hátæknisetrinu Norðurtanga á Ísafirði og í eldri framleiðslueiningu í svokölluðu Íshúsfélagshúsi. Nú stendur yfir undirbúningur að byggingu nýrrar framleiðslueiningar sem byggð verður í nokkrum áföngum og verður fullbyggð sex þúsund fermetrar. Áætlað er að framleiðsla hefjist í nýja hátæknisetrinu haustið 2026.

Hráefnið í framleiðslunni er fiskroð, sem fengið er frá Hraðfrystihúsinu- Gunnvöru (HG) í Hnífsdal og Íslandssögu á Suðureyri. Þess má get að HG átti um 2% í Kerecis þegar það var selt. Í dag starfa um 60 manns hjá Kerecis á Ísafirði og reiknar Guðmundur Fertram með því að þeim muni fjölga á komandi misserum.

Markaðsleyfið frá FDA (í. Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna) er háð úttekt á aðstöðu og framleiðsluaðferðum á Ísafirði. Spurður hvort þetta þýði ekki að verksmiðjan verði þar um ókomna framtíð svarar Guðmundur Fertram: „Ég á ekki von á öðru en það er auðvitað hægt að flytja framleiðsluna og fá FDA til að taka hana út á nýjum stað, en það ferli myndi taka yfir áratug. Það er ekkert sem bendir til þess að stjórnendur Coloplast hafi slík áform, þeir hafa þvert á móti verið ánægðir með starfsemina á Ísafirði.“

Ítarlegt viðtal við Guðmund Fertram er í tímaritinu Áramót. Áskrifendur geta lesið viðtalið í held hér.