Bandaríski fréttaþátturinn 60 Minutes fjallaði um aðferð Carbfix til kolefnisbindingar á sjónvarpsstöðinni CBS síðastliðinn sunnudag. Fréttamaðurinn Bill Whitaker heimsótti Hellisheiði og ræddi við Söndru Ósk Snæbjörnsdóttur en 60 Minutes er vinsælasti fréttaþáttur Bandaríkjanna.

Áhersla þáttarins var á lofthreinsun og föngun koltvíoxíðs beint úr andrúmslofti, en bandarísk stjórnvöld leggja um þessar mundir áherslu á að styðja við innleiðingu þeirrar tækni. Fulltrúar Carbfix lögðu hins vegar áherslu á að föngun og binding kolefnis mætti ekki verða afsökun til að hægja á aðgerðum sem miða að því að minnka brennslu jarðefnaeldsneytis.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

„Þetta er stærsta áskorun okkar kynslóðar. Við þurfum stórar lausnir. Við þurfum að skila kolefninu aftur á sinn stað, ofan í jörðina,“ sagði Kári Helgason hjá Carbfix í viðtali við Bill Whitaker.

Í þættinum voru einnig nefnd áform Carbfix um Coda Terminal eða Sódastöðina, stærsta einstaka loftslagsverkefni á Íslandi, sem gengur út á að reisa miðstöð fyrir móttöku og bindingu CO2 í Straumsvík í Hafnarfirði. Markmiðið þar er að binda árlega 3 milljónir tonna, sem er meira en allur iðnaður á Íslandi losar samanlagt. Það kæmi bæði frá Evrópu og álverinu í Straumsvík og mögulega öðrum innlendum iðnaði.

Kári Helgason kemur einnig fram í þættinum.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Það var svissneska fyrirtækið Climeworks hóf rekstur á Orca, stærstu lofthreinsistöð heims, skammt frá Hellisheiðarvirkjun haustið 2021. Framkvæmdir eru hafnar við nýja stöð fyrirtækisins á sama stað sem mun margfalda uppsett afköst, sem verða þá allt að 40 þúsund tonn af CO2 á ári og er binding þess í jörðu á vegum Carbfix.

Carbfix hefur frá árinu 2012 bundið CO2 úr útblæstri Hellisheiðarvirkjunar í bergi neðanjarðar, alls um 90 þúsund tonn. Frá því að lofthreinsistöð Climeworks hóf rekstur hefur Carbfix einnig tekið við CO2 þaðan og bundið það með sömu aðferð.