Úttekt Viðskiptablaðsins á efstu sætum framboðslista stjórnmálaflokkanna sýnir að tæplega 60% frambjóðenda eru annaðhvort stjórnmálamenn eða opinberir starfsmenn.

Í úttektinni eru störf þeirra sem skipa fimm efstu sætin á listum þeirra flokka sem nú eiga sæti á þingi skoðuð. Störfin eru flokkuð með eftirfarandi hætti:

  • Í fyrsta lagi almenni markaðurinn. Í þennan flokk voru þeir frambjóðendur sem starfa hjá einkafyrirtækjum, verktakar, sjálfstætt starfandi og bændur.
  • Í öðru lagi voru stjórnmálamenn teknir í sérflokk og auk sitjandi alþingismanna og þeirra sem hafa stjórnmál að ævistarfi voru sveitarstjórnarfulltrúar stærri sveitarfélaga settir í þennan flokk.
  • Þriðji hópurinn er opinberi geirinn og ekki þarf að orðlengja um hverjir eru í þeim flokki.
  • Í næsta hópi voru þeir sem starfa hjá hinum svokallaða þriðja geira settir en þar er um að ræða félagasamtök, hagsmunasamtök og íþróttahreyfinguna svo dæmi séu tekin.

Þegar litið er til einstakra flokka má sjá að einungis 13,3% frambjóðenda Samfylkingarinnar koma frá almenna markaðnum. 70% þeirra eru stjórnmálamenn eða opinberir starfsmenn.

Þá koma 13% þeirra úr þriðja geiranum. Þar á meðal er Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands og einn varaforseta ASÍ, og Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Bergsins headspace.

Þar að auki er Hannes Sigurbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands í öðru sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, en hann bauð sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn fyrir áratug síðan.

Árétting vegna fréttatilkynningar Samfylkingar:

Úttektin nær til síðasta starfs sem frambjóðendur gegndu fyrir Alþingiskosningarnar 30. nóvember. Í upphaflegri útgáfu greinarinnar var Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, sem situr í fimmta sæti á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi, ranglega titluð sem opinber starfsmaður.

Þórður Snær, sem situr í þriðja sæti á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður, var flokkaður opinber starfsmaður vegna fregna um að eftir blaðamennskuna hafi hann starfað fyrir Samfylkinguna. Samkvæmt upplýsingum frá flokknum hefur hann ekki starfað neitt fyrir flokkinn og því hefur hann verður færður undir almenna markaðinn.

Beðist er velvirðingar á þessu og hafa hlutföllin verið leiðrétt í greininni. Hlutfall frambjóðenda úr almenna markaðnum mælist 13,3% í stað 6,7%.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast greinina í heild hér.