A4 festi nýverið kaup á fjölskyldufyrirtækinu Puzzled by Iceland og hefur starfsemi fyrirtækjanna nú þegar verið sameinuð. Í tilkynningu segir að fjölbreytt vörulína fyrirtækisins sé góð viðbót við breitt vöruval A4.
Puzzled by Iceland var stofnað árið 2010 og framleiðir vörur sem sækja innblástur sinn í íslenska náttúru. Má þar til dæmis nefna innkaupapoka, strokka, klúta, höfuðpúða og svefngrímur. Fyrirtækið hefur undanfarin ár verið rekið af samhentri fjölskyldu sem lagði mikla áherslu á að vörumerkið fengi heimili sem myndi hjálpa því að vaxa og dafna.
Guðrún Heimisdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri Puzzled by Iceland:
"Það var ljóst þegar við nálguðumst A4 að þau gerðu sér grein fyrir þeim ótal möguleikum sem við vitum að Puzzled by Iceland býr yfir. Okkur fannst ljóst að þarna væri um að ræða öflugan arftaka þeirrar miklu vinnu sem hefur verið lögð í fyrirtækið fram að þessu. Við kveðjum Puzzled by Iceland með bros á vör og óskum því og nýjum eigendum alls hins besta."
Egill Þór Sigurðsson, forstjóri A4:
"Við hlökkum mikið til þess að halda áfram því góða starfi sem fyrri eigendur vörumerkisins hafa unnið og að geta boðið viðskiptavinum og söluaðilum okkar um land allt upp á þessar einstöku vörur. Vöruþróun hefur skipað stóran sess í starfsemi Puzzled by Iceland og við ætlum að halda áfram að gera henni hátt undir höfði. Þannig mun þessi viðbót auðga okkar starfsemi til hagsbóta fyrir okkar góðu viðskiptavini."