Bandaríski sjóðs­stjórinn Bill Ack­man hvetur bandarísk stjórn­völd til að af­skrifa nær 200 milljarða dala kröfu sína á fast­eigna­lána­risana Fanni­e Mae og Freddi­e Mac, komi til þess að félögin verði aftur einka­vædd.

Að öðrum kosti telur hann framtíð þeirra sem einka­fyrir­tækja vera í upp­námi, sam­kvæmt Financial Times.

Ack­man, sem stýrir vogunar­sjóðnum Pers­hing Square, er meðal þeirra fjár­festa sem keyptu hluta­bréf í Fanni­e og Freddi­e í þeirri von að félögin yrðu tekin úr ríkisumsýslu (e. con­servators­hip) á endanum með til­heyrandi hagnaði fyrir hlut­hafa.

Fanni­e Mae og Freddi­e Mac voru færð undir stjórn bandaríska ríkisins í kjölfar fjár­mála­kreppunnar árið 2008.

Ríkið lagði félögunum til um 200 milljarða dala í neyðar­fjár­mögnun en leyfði engu að síður áfram við­skipti með hluta- og for­gangs­bréf þeirra á markaði.

Sú ákvörðun leiddi til þess að þó nokkrir áhættu­fjár­festar keyptu í félögunum í von um að þau myndu endur­heimta stöðu sína og skila arði.

Félögin tvö hafa náð vopnum sínum aftur og hefur bandaríska ríkið fengið um 300 milljarða dala í arð­greiðslur og aðrar tekjur frá þeim.

Vill af­skriftir til að bæta virði félaganna

Í ný­legri og ítar­legri kynningu sem FT fjallar um heldur Ack­man því fram að markaðsvirði Fanni­e og Freddi­e gæti numið allt að 35 dölum á hlut eftir að félögin hafa verið endur­skipulögð og tekin til al­menns hluta­fjárút­boðs. Metur Ack­man þannig virði félaganna um þre­falt hærra en núverandi markaðsverð.

Það sem stendur í vegi, að hans mati, eru for­gangs­bréf að and­virði um 200 milljarða dala sem bandaríska ríkið á enn í félögunum.

Ef þeim væri breytt í al­menn hluta­bréf myndi það þynna veru­lega út hlut einka­fjár­festa eins og Ackmans.

Hann leggur því til að ríkið lýsi for­gang­skröfu sinni þegar greiddri og falli frá frekari til­kalli.

Að öðrum kosti muni erfitt reynast að skapa traust meðal nýrra fjár­festa í félögum sem hafi ekki virt rétt fyrri hlut­hafa. Að mati Ack­man gæti það endað í löngum mála­ferlum ákveði ríkið að breyta kröfum sínum í hluta­bréf.

Fjölda spurninga er enn ósvarað um hvernig út­færa eigi út­göngu Fanni­e og Freddi­e úr ríkisumsýslu, sam­kvæmt FT, en til að mynda er enn deilt um hversu hátt eigin­fjár­hlut­fall þeirra á að vera svo þau geti staðið af sér áföll.

Stjórn­völd í Was­hington eiga enn eftir að ákveða hvort fast­eigna­lána­risarnir eigi að vera með sömu eigin­fjár­hlutöll og bankar eða hærra.

Sam­kvæmt FT eru stjórn­völd vestan­hafs ekkert að flýta sér enda skila félögin enn gríðar­legum arði á meðan unnið er að einka­væðingunni.