Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, telur líklegt að verslunin muni opna netverslun með áfengi á komandi misserum.
„Við erum farin að skoða undirbúning á einhverskonar útfærslu á vefverslun á komandi mánuðum eða misserum,” segir Sigurður í samtali við mbl.is.
Heildsöluverslunin Costco tilkynnti í gær að einstaklingar geta nú keypt áfengi í netverslun.
Hingað til hefur Costco aðeins leyft þeim sem hafa vínveitingaleyfi að versla áfengi hjá sér en nú geta allir þeir sem hafa aldur til keypt áfengi hjá versluninni.
Á vefsíðu Costco eru fleiri 100 vörutegundir eru í boði, þar á meðal léttvín, bjór og sterkt áfengi.
Hagkaup segir er nú þegar með vefverslun og segir Sigurður því auðvelt að bæta við áfengissölu þar.