Fræðslufyrirtækið Akademias tók nýverið yfir rekstur AVIA, sem hefur þróað eigin fræðslukerfi. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.
AVIA hefur á undanförnum árum þróað fræðslukerfi sem hefur þá sérstöðu að vera bæði fræðslukerfi og samskiptakerfi auk þess að geta gegnt hlutverki innri vefs.
„AVIA getur því ekki aðeins haldið utan um alla rafræna fræðslu, heldur einnig komið í stað Facebook Workplace, en eins og flestir vita þá verður sú þjónusta ekki í boði frá og með ágúst á næsta ári. Það er því mikil hagkvæmni fólgin í því fyrir vinnustaði að taka AVIA í notkun og um leið fækka aðeins í kerfisflórunni.“
AVIA var formlega stofnað 2021 og þjónustar í dag um 40 vinnustaði og um 15.000 notendur í fjölbreyttum greinum. Meðal vinnustaða sem kjósa AVIA má nefna Ölgerðina, Póstinn, Álverið í Straumsvík, Reykjanesbæ, Hrafnistu, Hafnarfjarðarbæ, ÍSÍ, og KEA Hótel.
,,Með AVIA fá viðskiptavinir Akademias alhliða þjónustu við rafræna fræðslu á einum stað: greiningar, ráðgjöf, stærsta rafræna fræðslusafn á Íslandi, framleiðslu á sértæku námsefni og fræðslukerfi. Það hefur orðið gríðarleg fjölgun á vinnustöðum þar sem rafræn fræðsla er í lykilhlutverki fræðslustarfsins. Stjórnendur gera sér grein fyrir því að vel þjálfað starfsfólk skapar aukin verðmæti og draga úr rekstraráhættu í síbreytilegum heimi,“ segir Guðmundur Arnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Akademias.
„Við erum afar ánægð með þessa viðbót við þjónustu Akademias sem viðskiptavinir hafa fagnað. AVIA gerir okkur kleift að einfalda líf mannauðs- og fræðslustjóra gríðarlega mikið en jafnframt skapa mikið hagræði fyrir vinnustaði.“
Akademias þjónustar yfir 100 vinnustaði í gegnum Vinnustaðaskóla Akademias, en áskrift felur m.a. í sér aðgang að 180 námskeiða rafrænu fræðslusafni, öfluga ráðgjöf á sviði fræðslumála, greiningu á fræðsluþörfum auk framleiðslu á sértæku fræðsluefni.
Akademias var stofnað 2020 af Guðmundi Arnari Guðmundssyni og Eyþóri Ívari Jónssyni en í dag starfa 22 hjá félaginu. Félagið er með 10 manna framleiðsludeild sem sérhæfir sig í mótun og gerð rafræns fræðsluefnis.