Koltvísýringslosun (CO2) frá íslensku atvinnulífi og heimilum var 5.489 kílótonn árið 2022 og er spáð að hún verði 5.724 kílótonn árið 2023. Þetta kemur fram á heimasíðu Hagstofunnar.

Samkvæmt loftslagsbókhaldi hagkerfisins komu 834 kílótonn af CO2, eða 15% af heildarlosun hagkerfisins, frá vegasamgöngum árið 2022. Árið 2023 er því spáð að losun verði 821 kílótonn eða 14% af heildarlosun.

Rekstur bifreiða sem skráðar voru hjá heimilum var 516 kílótonn árið 2022 og 506 kílótonn árið 2023. Þetta þýðir að heimilin standa að baki 62% af losun vegna vegasamgangna eða tæplega 10% af heildarlosun CO2 hagkerfisins.

Þá tekur Hagstofan þó fram að losunarbókhald hagkerfisins sé frábrugðið losunarbókhaldi Íslands, sem er gildandi uppgjör gagnvart loftslagsráði Sameinuðu þjóðanna, að því leyti að þar er um að ræða niðurbrot losunar eftir atvinnugreinum sem starfa að hluta utan landsvæðis Íslands. Fyrir vikið eru tölurnar frábrugðnar.