Bandaríski álrisinn Alcoa tapaði 2,34 milljörðum dala, jafnvirði rúmlega 270 milljarða íslenskra króna, á fjórða ársfjórðungi nýliðins árs. Þetta er verulegur viðsnúningur frá sama tíma ári fyrr þegar hagnaður félagsins nam 242 milljónum dala. Afkoman er nokkuð undir væntingum greiningaraðila.

Tapið skýrist m.a. af 243 milljóna króna sektargreiðslu á fyrirtækið vegna mútumáls í Barein og afskrifta á 1,7 milljarða dala viðskiptavildar. Bloomberg-fréttastofan segir miklar birgðir af áli hafa safnast upp þar sem eftirspurn hafi dregist saman um 73% á milli ára. Þetta endurspeglar verð á áli sem hefur verið lágt upp á síðkastið. Meðalverðið á áli stóð í 1.815 dölum á tonnið sem var 10% lægra en á þriðja ársfjórðungi. Verðið hefur ekki verið lægra á hrávörumarkaðnum London Metal Exchange síðan á öðrum ársfjórðungi árið 2009. Stjórnendur Alcoa gera ráð fyrir því að eftirspurn eftir áli muni aukst um 7% á þessu ári.

Tekjur Alcoa námu 5,59 milljörðum dala á fjórðungnum sem var 5,3% samdráttur á milli ára.

Gengi hlutabréfa Alcoa, sem jafnframt á álver Fjarðaráls á Reyðarfirði, féll um 4,4% á hlutabréfamarkaði í New York í Bandaríkjunum í gær eftir að uppgjör fyrirtækisins var birt.