Alvotech hefur keypt allan rekstur og aðstöðu Ivers-Lee, sem er með höfuðstöðvar í Burgdorf í Sviss. Ivers-Lee sérhæfir sig í þjónustu við lyfjaiðnaðinn og hefur áratugareynslu af hágæðasamsetningu og -pökkun lyfja, að því er segir í tilkynningu Alvotech til Kauphallarinnar.
Fyrirtækið verður framvegis rekið sem deild innan framleiðslusviðs Alvotech.
„Með kaupunum býr Alvotech sig undir mikinn vöxt eftirspurnar ásamt því að auka afköst í framleiðslu og sveigjanleika.“
Ivers-Lee var stofnað í Burgdorf í Sviss árið 1947. Fyrirtækið hefur frá stofnun séð um pökkun fyrir fjölmörg stærstu lyfjafyrirtæki heims, samkvæmt Alvotech. Ivers-Lee starfrækir einnig útibú í Lörrach í Þýskalandi.
Framleiðslueiningin í Burgdorf er með alþjóðlega GMP-vottun fyrir lyfjaframleiðslu og framleiðsluleyfi fyrir Bandaríkjamarkað frá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA).
Meðal þeirrar þjónustu sem Ivers-Lee hefur veitt Alvotech er pökkun fullbúinna vara og samsetning á lyfjapennum og áfylltum sprautum. Alvotech segir að Ivers-Lee muni halda áfram að sinna margvíslegum verkefnum fyrir önnur lyfjafyrirtæki.
„Ivers-Lee hefur veitt Alvotech mikilvæga þjónustu undanfarin ár. Stjórnendur fyrirtækjanna þekkjast því orðið vel eftir náið og farsælt samstarf,“ segir Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.
„Við erum að búa okkur undir að setja þrjár nýjar hliðstæður á markað seinni part ársins og sala fer vaxandi á mörkuðum okkar um allan heim. Með því að samþætta rekstur Ivers-Lee og framleiðslusviðs Alvotech getum við brugðist hraðar við vexti eftirspurnar. Markmiðið er að tryggja viðskiptavinum okkar ávallt hámarksgæði og afburðaþjónustu.“
Framkvæmdastjóri Ivers-Lee, Peter Schüpbach, alnafni og barnabarn stofnanda félagsins, mun halda áfram að stýra rekstrinum og verður hluti af stjórnendateymi framleiðslusviðs Alvotech.
„Alvotech veitir Ivers-Lee aukinn fjárhagslegan styrk og tækifæri til að þróast á vaxandi markaði. Breytingin mun leiða til aukins stöðugleika fyrir starfsfólk og rekstur félagsins,“ er haft eftir Peter Schüpbach.