Alvotech og STADA tilkynntu í morgun að fyrirtækin hafi útvíkkað samstarf sitt með samningi um markaðssetningu AVT03, fyrirhugaðrar líftæknilyfjahliðstæðu við Prolia og Xgeva (denosumab).
Frumlyfin, sem eru nú á lokastigi klínískra rannsókna, eru annars vegar notuð til meðferðar við beinþynningu og hins vegar við sjúkdómum í beinum sem tengjast krabbameini.
Í tilkynningu segir að samkvæmt samningnum muni Alvotech sjá um alla þróun og framleiðslu, en STADA fær rétt til sölu og markaðssetningar. STADA fer með sameiginlegan rétt á Evrópska efnahagssvæðinu og í Bretlandi, en einkarétt í nokkrum Mið-Asíuríkjum og Mið-Austurlöndum.
„Þar sem STADA er leiðandi í sölu lyfja gegn beinþynningu, sjáum við mikil tækifæri í að bjóða sjúklingum og meðferðaraðilum upp á aukin úrræði með þessari fyrirhuguðu hliðstæðu við Prolia og Xgeva. Þar sem við erum þegar með sterka markaðshlutdeild í líftæknilyfjahliðstæðum sem notaðar eru til meðferðar við krabbameini, mun þetta aukna samstarf við Alvotech gera okkur kleift að nýta betur stöðu okkar á þessum markaði,“ sagði Bryan Kim, yfirmaður sérlyfjadeildar STADA.
„Við hlökkum til þess að vinna með STADA að því að bæta aðgengi sjúklinga að hliðstæðu við Prolia og Xgeva, eins og við höfum þegar gert með hliðstæðu okkar við Humira. Aukið samstarf félaganna sýnir glögglega sérstöðu Alvotech sem er byggð á sérhæfingu og fullkominni aðstöðu til þróunar og framleiðslu líftæknilyfjahliðstæða,“ sagði Anil Okay, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Alvotech.
Í tilkynningu segir að amkvæmt nýjustu gögnum International Osteoporosis Foundation (IOF) er áætlað að 32 milljónir Evrópubúa, eða tæp 6% íbúa álfunnar sem náð hafa 50 ára aldri, hafi verið með einkenni beinþynningar á árinu 2019.
Samkvæmt samtökunum sem beita sér fyrir bættum hag sjúklinga með beinþynning var yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem greindust með einkenni beinþynningar, eða fjórir af hverjum fimm einstaklingum, sem eru 25,5 milljón manns, voru kvenkyns.
IOF áætlar að beinn kostnaður á árinu 2019 vegna beinbrota sem rekja má til beinþynningar hafi samanlagt numið um 8.500 milljörðum króna (56,9 milljörðum evra) í Evrópusambandsríkjunum, Sviss og Bretlandi.