Við­skipti með hluti í líftækni­lyfja­fyrir­tækinu Al­vot­ech hófust í dag á Nas­daq-markaðnum í Stokk­hólmi. Félagið verður skráð undir auð­kenninu ALVO SDB, en SDB (Swedish Depository Receipts) eru sænsk heimildar­skír­teini sem jafn­gilda hluta­bréfum í félaginu.

Skráningin í Svíþjóð er liður í stefnu félagsins um að auka sýni­leika á alþjóð­legum mörkuðum, með sér­stakri áherslu á Skandinavíu og Evrópu.

Jafn­framt er mark­miðið að auka við­skipti með hluti í félaginu og fjölga hlut­höfum. Með skráningunni verður Al­vot­ech skráð samtímis á þremur aðal­mörkuðum Nas­daq; í Bandaríkjunum, á Ís­landi og nú í Svíþjóð.

„Við lítum á skráninguna í Stokk­hólmi sem þjónustu við núverandi hlut­hafa eða þá sem hyggjast fjár­festa í félaginu og að hún muni stuðla að auknum við­skiptum með bréf í félaginu. Hluta­bréfa­markaðurinn í Stokk­hólmi er einn sá stærsti í Evrópu, sér­stak­lega í við­skiptum með bréf fyrir­tækja í heil­brigðis­geiranum. Skráning Al­vot­ech á Nas­daq í Stokk­hólmi mun stuðla að því að breiðari hópur markaðsaðila í Skandinavíu og Evrópu sem fjár­festa í líftækni- og lyfja­fyrir­tækjum kynnist Al­vot­ech og geti fjár­fest í félaginu. Viðbrögð markaðsaðila sem við höfum fundað með að undan­förnu og um­fram­eftir­spurn í út­boðinu sem lauk í síðustu viku, bendir til mikils áhuga,“ sagði Róbert Wess­man, stjórnar­for­maður og for­stjóri Al­vot­ech.


Í að­draganda skráningarinnar stóð Al­vot­ech fyrir hluta­fjárút­boði sem ein­göngu var opið fjár­festum í Svíþjóð.

Út­boðinu lauk föstu­daginn 16. maí og reyndist eftir­spurn marg­föld á við fram­boð. Alls voru í boði 441.600 sænsk heimildar­skír­teini, og fengu yfir 3.000 nýir fjár­festar út­hlutað SDR-skír­teinum.

Gengi í út­boðinu var 1.167,8 krónur (eða 87,51 sænskar krónur) á hverja einingu, sem sam­svarar 90% af vegnu meðal­verði hluta­bréfa Al­vot­ech á út­boðstíma­bilinu 9.–16. maí.

Í tengslum við skráninguna býður Al­vot­ech núverandi hlut­höfum að breyta hluta­bréfum sínum í sænsk heimildar­skír­teini.

Félagið mun standa straum af þóknunum vegna yfir­færslunnar til Euroc­lear í Svíþjóð og DNB Bank ASA, sem sér um út­gáfu SDR-skír­teinanna.

Til­boðið gildir í tólf mánuði frá skráningu, en hlut­hafar gætu þurft að greiða þjónustu­gjöld til eigin vörslu­aðila eða við­skipta­banka.