Bandaríska tæknifyrirtækið Meta, sem rekur meðal annars samfélagsmiðilinn Facebook, hefur kynnt mánaðarlega áskriftarþjónustu fyrir notendur sýndarveruleikagleraugna. Meta segir að áskrifendur þjónustunnar muni meðal annars fá tvo nýja tölvuleiki í hverjum mánuði.

Meta tapaði rúmlega 4 milljarða dali fyrstu þrjá mánuði ársins á sýndarveruleikagleraugum sínum en fyrirtækið er í harðri samkeppni við tæknirisann Apple, sem kom nýlega út með sín eigin gleraugu.

Apple Vision Pro gleraugun frá Apple sem kynnt voru fyrr í þessum mánuði koma til með að kosta 3.499 dali og verða einungis fáanlega í Bandaríkjunum á næsta ári.

Áskriftarþjónusta Meta mun kosta 7,99 dali, eða rúmlega þúsund krónur, á mánuði en notendur geta líka greitt 59,99 dali (tæplega átta þúsund krónur) á ári.

„Með tímanum vona ég að það verði litið á okkur sem fyrirtæki sem vill festa verk okkar og sjálfsmynd í markmið framtíðarinnar,“ segir Mark Zuckerberg, framkvæmdastjóri Meta.

Samkvæmt ársuppgjöri Meta skilaði fyrirtækið inn 5,7 milljarða dala hagnaði fyrstu þrjá mánuði þessa árs, sem var langt umfram markaðsvæntingar. Hins vegar tapaði Reality Labs, sýndarveruleikadeild fyrirtækisins sem framleiðir gleraugun, rúmlega 4 milljarða á sama tímabili.