Í athugasemdinni segir orðrétt:
Hið rétta í málinu er eftirfarandi:
- Haustið 2010 fékk Rekstrarfélag Stjórnarráðsins það verkefni frá ríkisstjórninni að taka við ráðherrabifreiðunum og gera áætlun um endurnýjun þeirra.
- Snemma á þessu ári var slík áætlun tilbúin og gerður rammasamningur til þriggja ára.
- Niðurstaðan hefur verið kynnt rekstrarstjórum og í kjölfarið ákvað ríkisstjórnin að engar nýjar bifreiðar yrðu keyptar á þessu ári. Það á vitanlega einnig við um bifreið forsætisráðherra.
- Benda má á að bílafloti ráðherranna er orðinn gamall og viðhald eykst að sama skapi.
- Jafnframt má benda á að núverandi ríkisstjórn hefur beitt sér fyrir miklum umbótum á Stjórnarráði Íslands sem meðal annars hefur falist í sameiningu ráðuneyta og fækkun ráðherra. Við það minnkar bílafloti ráðherranna.