Svissneska fjárfestingafélagið Partners Group hefur samið um kaup á hátæknifyrirtækinu atNorth. Partners Group er skráð félag og er eitt það stærsta sinnar tegundar í Evrópu, að því er kemur fram í tilkynningu. Kaupin eru sögð falla vel að stefnu atNorth um aukin umsvif á Norðurlöndum á komandi árum.
atNorth, sem hét áður Advania Data Centers, rekur í dag þrjú gagnaver á Íslandi og Svíþjóð og þjónar ýmsum fyrirtækjum víðs vegar að úr heiminum, frá litlum fyrirtækjum til alþjóðlegra stórfyrirtækja og stofnana í fjölmörgum greinum, t.d. í heilbrigðisgeiranum, í rannsóknum og vísindum, framleiðslu, fjármálaiðnaði og veðurfræði.
Sjá einnig: atNorth vill lóð undir gagnaver á Akureyri
Starfsmenn atNorth eru alls um 40 talsins, en að auki koma um 40 verktakar beint að daglegri þjónustu í kringum rekstur fyrirtækisins og enn fleiri óbeint. Stjórnendateymi atNorth verður áfram við stjórnvölinn og mun stýra sókn félagsins inn á nýja markaði.
Partners Group er skráð á hlutabréfamarkað í Sviss. Markaðsvirði fjárfestingafélagsins nemur 38,4 milljörðum svissneskra franka eða um 5,4 þúsund milljörðum króna. Eignir í stýringu hjá Partners Group námu 119 milljörðum dala í lok júní síðastliðnum.
Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth:
„Við höfum þegar náð góðri fótfestu með uppbyggingu sjálfbærra og hagkvæmra gagna- og reiknivera á Íslandi og Svíþjóð. Nú er hins vegar tímabært að taka stærri skref og sækja hraðar fram á ört vaxandi markaði. Við hlökkum til þessa nýja kafla í vegferð atNorth með Partners Group, sem hefur mikla þekkingu á stafrænum innviðum, verðmæta rekstrarreynslu og mikla fjárfestingargetu.“