Alls bárust átta umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins, sem auglýst var í febrúar síðastliðnum en umsóknafrestur rann út 7. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Guðmundur Árnason lét af embætti ráðuneytisstjóra um áramótin en hann hafði gegnt embættinu frá árinu 2009. Tómas Brynjólfsson, einn umsækjendanna, var settur ráðuneytisstjóri til 31. mars næstkomandi en hann hefur starfað sem skrifstofustjóri skrifstofu efnahagsmála.

Meðal annarra umsækjenda um embættið er Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra.

Umsækjendur um embættið eru:

  • Esther Finnbogadóttir, leiðandi sérfræðingur
  • Guðrún Ögmundsdóttir, skrifstofustjóri
  • Jóhann Ágústsson, viðskiptafræðingur/ráðgjafi
  • Matthías G. Pálsson, fastafulltrúi Íslands hjá FAO, WFP og IFAD í Róm
  • Sigríður Á. Andersen, lögmaður
  • Sigríður Kristbjörnsdóttir, löggiltur endurskoðandi, fjármála- og verkefnastjóri
  • Sigurður H. Helgason, forstjóri
  • Tómas Brynjólfsson, settur ráðuneytisstjóri