Neytendastofa hefur sektað kynlífstækjaverslunina Blush um 200 þúsund krónur. Ákvörðunin snýr að fasteignaauglýsingu á fasteign Gerðar Huldar Arinbjarnardóttur, eiganda Blush, þar sem kynlífshjálpartækjum hafði verið stillt upp.
Þá hafi umfjöllun áhrifavaldsins Birnu Rúnar Eiríksdóttur um fasteignaauglýsinguna á samfélagsmiðlum verið dulin auglýsing. Jafnframt kom Pipar auglýsingastofa að auglýsingaherferðinni.
„Umfjöllun um fasteignaauglýsinguna sem dreift var á Instagram og Tiktok og aðrar umfjallanir um vörur Blush á Instagram og Tiktok sem ekki voru merktar sem auglýsing,“ segir í tilkynningu Neytendastofu.
Í svörum Blush kom fram að samstarf Birnu og Blush hafi hafist í júlí 2022 en Birna hafi hvorki fengið greitt í peningum né vörum fyrir umrætt myndband og ekki hafi verið óskað eftir auglýsingu frá henni.
Í svörum Pipar auglýsingastofu kom fram að félagið hafi verið í samstarfi við Blush við gerð auglýsingaherferðar til kynningar á vörum Blush og hafi m.a. nýtt tækifærið að Gerður væri að selja fasteign og „falið“ vörur frá Blush inni á fasteignaljósmyndunum til að sjá hvort fólk tæki eftir þessum hlutum inni á myndunum.
Pipar segist hins vegar ekki hafa verið í neinu samstarfi eða samskiptum við Birnu við gerð umfjallana um vörur Blush. Þá kom fram í svörum Birnu að hún hafi gert umrætt Tiktok myndband eftir að Gerður hafi bent henni á fasteignaauglýsinguna og sagt henni að þar leynist skemmtilegir hlutir sem gæti verið fyndið grín á Tiktok.
Þá kom fram í svörum Birnu að hún hafi greinilega ekki kynnt sér reglur um auglýsingar á samfélagsmiðlum nægilega vel en muni bæta úr því.
„Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að neytendur hafi verið blekktir með fasteignaauglýsingunni enda engar merkingar eða nokkuð annað sem gaf til kynna að um annað en hefðbundna fasteignaauglýsingu væri að ræða. Uppstilling vara Blush í fasteignaauglýsingunni var að mati Neytendastofu gerð í auglýsinga- og viðskiptalegum tilgangi,“ segir í tilkynningu Neytendastofu.
„Markmiðið hafi verið að vekja athygli neytenda á vörum Blush, og var fasteignaauglýsingin sjálf í raun hluti af auglýsingaherferð fyrir Blush sem gerð var með aðkomu Pipar auglýsingastofu. Með því hafi bæði Blush og Pipar auglýsingastofa brotið gegn ákvæðum laga með villandi viðskiptaháttum og notkun dulinna auglýsinga.“
Neytendastofa hefur því bannað Blush, Pipar auglýsingastofu og Birnu Rún Eiríksdóttur að viðhafa ofangreinda viðskiptahætti að viðlögðum sektum.