Kanadíska flugfélagið WestJet hefur hafið sínar fyrstu ferðir milli Calgary í Albertafylki og Keflavíkur. Fyrsta flugvélin frá félaginu lenti í morgun og klipptu forstjóri Isavia og framkvæmdastjóri frá WestJet á borða áður en flogið var frá Keflavíkurflugvelli.
Angela Avery, framkvæmdastjóri hjá WestJet, sagði við það tækifæri að áfangastaðurinn Ísland byði upp á landslag sem væri hrífandi og jarðfræðilega fjölbreytt.
„Við erum afskaplega ánægð með að geta bætt Íslandi við sem nýjum beinum áfangastað okkar í Evrópu.“ Hún benti á að WestJet væri eina flugfélagið sem tengdi Ísland við Calgary.
WestJet flýgur á Boeing 737 MAX vél milli Calgary og Keflavíkurflugvallar fjórum sinnum í viku fram í miðjan október næstkomandi.
Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, sagði einnig við þetta tækifæri að hann hlakkaði til samstarfsins við WestJet sem yrði mikilvægur samstarfsaðili flugvallarins til framtíðar. „Sú ákvörðun WestJet að hefja þetta áætlunarflug styður við þá framtíðarsýn okkar að tengja heiminn í gegnum Ísland.“
Í tilkynningu frá WestJet kemur fram að félagið hafi gert samning við Icelandair þess efnis að farþegar kanadíska flugfélagsins geti bókað sig áfram á einum flugmiða frá Calgary í gegnum Keflavíkurflugvöll áfram til áfangastaða Icelandair í Evrópu. Það sama sé í boði fyrir farþega sem fljúgi frá Keflavík til Calgary sem geti farið áfram til annarra áfangastaða WestJet víða um heim.