Klukkan 8:30 hefst morgunfundur Almenna lífeyrissjóðsins. Tilefni fundarins er að á þessu ári eru liðin 25 ár síðan viðbótarlífeyrissparnaður hófst. Hægt er að fylgjast með beinu streymi frá fundinum neðst í fréttinni.

Fundurinn verður haldinn  í Vox Club salnum á Hilton Reykjavik Nordica og stendur frá kl. 8:30 til 9:30.

Már Wolfgang Mixa, dósent í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, Kristjana Sigurðardóttir, fjárfestingastjóri Almenna, og Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna, halda erindi á fundinum.

Fjallað verður vítt og breitt um viðbótarlífeyrissparnað, um sögu hans og þróun, af hverju hann er mikilvægur og hagstæður, hvernig best er að ávaxta hann og hver ávöxtunin hefur verið. Að loknum erindunum sitja fyrirlesarar fyrir svörum í pallborði. Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.

Fundarstjóri er Sveinn Ólafur Melsted, aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins.