Samtök Iðnaðarins efna til samtals við formenn stjórnmálaflokkanna á opnum fundi í Silfurbergi í Hörpu sem stendur yfir frá kl. 12.00-13.30. Yfirskrift fundarins er Hugmyndalandið.

Samtök iðnaðarins hafa gefið út 30 umbótatillögur sem þau telja að muni stuðla að aukinni samkeppnishæfni. Tillögurnar má nálgast hér. Þá hafa samtökin tekið saman helstu staðreyndir um hugverkaiðnaðinn, íbúðamarkaðinn og innviði landsins.

„Í upphafi nýs kjörtímabils verða teknar ákvarðanir sem ráða miklu um efnahagslega framtíð Íslands. Miklu máli skiptir að ákvarðanir nýrra stjórnvalda leiði til umbóta á Íslandi, bæði fyrir fólk og fyrirtæki. Samtök iðnaðarins telja að ráðast þurfi í nýja sókn á ýmsum sviðum.“

Dagskrá fundarins:

  • Ávarp – Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Samtal við formenn flokka – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, stýrir umræðum með þátttöku eftirtaldra:
    • Flokkur fólksins – Inga Sæland
    • Framsóknarflokkur – Sigurður Ingi Jóhannsson
    • Miðflokkurinn – Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
    • Píratar – Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
    • Samfylking – Kristrún Frostadóttir
    • Sjálfstæðisflokkur – Bjarni Benediktsson
    • Viðreisn – Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
    • Vinstri græn – Svandís Svavarsdóttir