Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) í samstarfi við Samtök atvinnulífsins standa fyrir morgunfundi undir yfirskriftinni Leiðir til að lækka vexti. Fundurinn, sem er haldinn á Hótel Reykjavík Natura, stendur yfir frá 9:00-11:00.

Á fundinum verður munu fulltrúar stjórnmálaflokka sem eru í framboði til Alþingis ræða sína framtíðarsýn fyrir fjármálaþjónustu hér á landi. ‍Marínó Örn Tryggvason, hjá Arma Advisors og fyrrverandi forstjóri Kviku banka, mun stýra pallborðsumræðunum með frambjóðendum.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, og ‍Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, flytja báðir erindi á fundinum.

Þá mun Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Intellecon, kynna niðurstöður úttektar ráðgjafafyrirtækisins um þróun starfsumhverfis fjármálaþjónustu á Íslandi undanfarin ár, ásamt skattspori fjármálageirans og ræðir niðurstöðurnar í samhengi við yfirskrift fundarins. Fjallað var um úttektina í Viðskiptablaði vikunnar.

Dagskrá fundarins:

Erindi:

  • Gunnar Haraldsson hagfræðingur mun kynna niðurstöður úttektar ráðgjafafyrirtækisins Intellecon um þróun starfsumhverfis fjármálaþjónustu á Íslandi undanfarin ár, ásamt skattspori fjármálageirans og ræðir niðurstöðurnar í samhengi við yfirskrift fundarins.
  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
  • Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri.

Pallborðsumræður með frambjóðendum:

  • Fulltrúar stjórnmálaflokka sem eru í framboði til Alþingis munu jafnframt ræða sína framtíðarsýn fyrir fjármálaþjónustu hér á landi næstu árin. Marínó Örn Tryggvason, hjá Arma Advisors og fyrrverandi forstjóri Kviku banka, stýrir pallborðsumræðunum með eftirfarandi frambjóðendum:
    • Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins
    • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins
    • Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar
    • Björn Leví Gunnarsson, oddviti Pírata í Reykjavík suður
    • Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík suður
    • Ragnar Þór Ingólfsson, oddviti Flokks fólksins í Reykjavík norður
    • Ólafur Ísleifsson, 3. sæti á lista Miðflokksins í suðurkjördæmi
    • Rósa Björk Brynjólfsdóttir, 2. sæti á lista VG í Reykjavík norður.

Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, verður fundarstjóri.

Þátttakendur á morgunfundinum.