Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur Seðlabankans, gera grein fyrir ákvörðun bankans að lækka stýrivexti um 0,25 prósentur, úr 7,75% í 7,5%, á kynningarfundi sem hefst kl. 9:30.
Í yfirlýsingu peningastefnunefndar sem var birt var í morgun segir nefndin að nýbirt spá Seðlabankans geri ráð fyrir að verðbólgan haldist nálægt 4% út árið en taki síðan að hjaðna í markmið.
Nefndin sagði að ekki hefðu skapast aðstæður svo að hægt sé að slaka á núverandi raunvaxtaaðhaldi peningastefnunnar sem hefur verið í kringum 4%.