Íslenskir Aðalverktakar (ÍAV) og Ístak hafa bitist um efsta sætið í tekjum fyrirtækja í byggingarstarfsemi á síðustu árum. Ístak var með yfirhöndina á síðasta ári með tekjur upp á 20,8 milljarða króna en ÍAV var með 16,5 milljarða í tekjur.

Síðasta ár var langbesta tekjuárið í greininni sé litið til síðustu ára en 10 stærstu fyrirtækin í greininni voru með samtals 104,4 milljarða króna í tekjur og uxu þær um rúman fjórðung milli ára. Í þriðja sæti yfir heildartekjur var Eykt með 15 milljarða króna og þar á eftir ÞG verktakar með 13,8 milljarða.

Nánar er fjallað um rekstur byggingarfyrirtækja í bókinni 500 stærstu, sem var að koma út. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér og hægt er að kaupa bókina hér.